hæhæ... ég var orðin dáldið leið á að hafa þessa seinustu færslu hérna efst... hún var ekkert alltof skemmtileg..ekki það að þessi eigi eftir að verða eitthvað frábær... en hún verður eflaust betri en hin...vonum það allavega ...hvað sem er til að færa hina niður hehe jæja... hvað er svo málið að gera um helgina?? það héldu allir að það væri ball í vík og maður var orðins voldið spenntur fyrir því... en nei ekkert ball ...skil ekki af hverju allir héldu að það væri ball.... hver kom þessu af stað...gefðu þig fram hehe... en já maður verður þá bara að finna sér eitthvað annað að gera.... eða bara vera heima í rólegheitunum .. það er líka sniðugt vá en ég verð að segja að ég er svona frekar svekkt akkurat núna... ég sit heima í tölvunni þegar ég gæti verið að djamma geðveikt með vinnunni... það var óvissuferð fyrir verslunarstjóranna og það var farið í rafting og eitthvað og svo vara bara grillað og drukkinn bjór og svo var planið að koma aftur í bæinn um 00:30 og þá gat hver sem vildi fara niðrí bæ...og þetta var allt ókeypis sko... að maður skyldi ekki skella sér...óskiljanlegt... þekkir mig einhver nógu vel til að geta sagt mér hvað sé að mér og af hverju í óskupunum ég hafi ekki skellt mér með þeim???
jæja ég ætla að hætta þessu í bili... þetta hlýtur að vera orðið nógu langt til að fela næstu færslu fyrir neðan hehe
sjáumst síðar... hafið það öll gott um helgina og.....
..................gangið hægt um gleðinnar dyr !!!!!
hæhó.... ég var að fatta að ég ber nákvæmlega ekkert traust til karlmanna... ég er þvílíkt óörugg með mína stöðu... og núna þegar maður er farin að slá sér upp þá er ég alltaf með einhver vafa ... þó að það sé nákvæmlega engin ástæða fyrir því... því að hann er algert æði..... en þá fer ég bara að hugsa... it's to good to be true hvað er að mér?? ég held samt að það megi kenna ákveðinni manneskju um þetta... hvað haldið þið..?? en sú manneskja er allavega búin að haga sér eins og mesti fáviti allra tíma og hugsar bara algerlega eingönu um rassgatið á sjálfum sér... man ábyggilega ekki einu sinni hvernig dóttir sín lítur út... sorglegt...
jæja sorrý ég er bara í skrýtnu skapi núna... dont worry.... því í gær var ég allavega mjög happý og daginn þaráður og þar á undan og.... hehe jæja ég ætla að hætta þessari vitleysu
HJÁLP... :) hehe ég er svo slæmur kokkur og mér langar svo að elda góðan mat núna eitthvert kvöldið... kunnið þið ekki einhverjar sniðugar uppskriftir af einhverju rosa góðu... endilega deilið með mér :D
hæhó... hvað segir fólkið gott ?? ég hef nú ekki neitt rosa mikið að segja ... en mér datt í hug að láta svona aðeins vita hvað ég var að bralla um helgina.. ég var nú bara róleg að mestu ...svona eins og vanalega.. en það sem er frábrugðið er að ég skellti mér á ball á laugardaginn... fór sem sagt á sálarball á players.. og það var geðveikt gaman... ég var að vísu orðin dáldið vel í glasi hehe en er það ekki bara betra... á meðan maður fer ekki yfir strikið... sem að ég gerði ekki ... ég reyndar sofnaði í bílnum á heimleiðinni en það er annað mál hihi jæja hvað gerðuð þið skemmtilegt um helgina??
hæhæ jæja þá er önnur helgi liðin... vá hvað tíminn líður hratt allavega þessa helgina skellti maður sér aðeins út.. það var nebbla sérstakt tilefni til að fagna því að hún Tinna okkar var að útskrifast...til hamingju Tinna í tilefni af því þá bauð hún til partýs á laugardagskvöldið og þar mættum við og allir með svartar húfur og það var geðveik stemming... seinna um kvöldið var aðeins kíkt í bæinn og ég fór reyndar snemma heim...en skemmi mér samt rosa vel takk fyrir kvöldið krakkar... gaman að sjá ykkur og það er alltof langt síðan ég hafði séð sum af ykkur ... verðum að hittast oftar...
hæhæ jæja... vá hvað það var mikið að gera á laugardaginn... við emilía héldum upp á afmælið hennar og það komu gestir í kaffi og kökur... síðan opnaði emilía fullt af pökkum... hún fékk fullt af flottum fötum og fullt af dóti líka... hún fékk svona göngubagn á hjólum sem að hún ýtir á undan sér og viti menn hún labbar um allt með þetta og dettur ekkert... ekkert smá dugleg... og mamman náttla að rifna úr stolti hehe jæja síðan um kvöldið þegar emilía var sofnuð eftir þennan skemmtilega dag þá skellti ég mé út að borða á hótel solfoss... við fengum rosa góðan mat og geggjaðan eftirrétt síðan bauð ég stelpunum heim og við fórum að fá okkur í glas... það var drukkið bjór og gin og rósavín og tópas þannig að það var svaka stuð á okkur síðan skelltum við okkur á pakkhúsið og skemmtum okkur á dansgólfinu... eða réttara sagt... ég, svandís og heiðrún vorum að dansa og guðný var alltaf að hözzla einhverja gaura... hún fór á kostum og var alveg með nokkra í takinu... gaman af því um að gera að missa sig aðeins þegar maður kemur úr stórborginni og fer að djamma í sveitinni... síðan er sagurinn í dag... (sunnudagur) bara búin að fara í rólegheit og smá þynnku... annars slapp ég nú mjög vel en Guðný greyið var hálf ónýt ... en jæja ég nenni ekki að blaðra meira í bili... best að fara að skella sér í háttin... en ég var að setja nýjar myndir á barnaland... allir að skoða og síðan ætla ég að setja inn myndir úr afmælinu á næstu dögum .... ég lofa... og hey það er skylda að skrifa í gestabókina ef þið farið að skoða ;)
hæhæ :) hvað segir fólkið?? ég var bara allt í einu að fatta að ég er ekki búin að vera nógu dugleg að blogga!!! hvað er að gerast?? :) ég sem ætlaði að vera svo dugleg jæja ég er allavega að bæta úr þessu núna... betra er seint en aldrei er það ekki?? hehe jæja það er nú kannski ekkert rosalega mikið að frétta hjá okkur núna... ég er bara búin að vera að vinna.. emilía er búin að vera hress og hún hefur alveg sloppið við veikindi núna í dáldin tíma.. about time annars má maður bara þakka fyrir að hún er hraust og heilbrigð og maður ætti nú ekki að vera að kvarta yfir einhverju smávægilegu eins og eyrnabólgu eða einhverju þvíumlíku.. það eru svo mörg börn þarna úti sem eru svo mikið veik.. ég vill nota tækifærið og senda öllum þeim börnum sem eru að stríða við alvarlega veikindi og fjölskyldum þeirra góða og jákvæða strauma..
nú hugsa kannski sumir... vá af hverju byrjaðiru allt í einu að tala um þetta... en þannig er mál með vexti að stóra (samt ekki nema 3 ára) frænka hennar Emilíu var að greinast með hvítblæði og næstu tvö ár verða mjög erfið hjá henni og fjölskyldu hennar..
Jæja en að öðru ...... emilía elsku litla dúllan mín er að verða eins árs á föstudaginn... vá hvað tíminn líður hratt mér finnst einhvernvegin ekki vera 21 mánuður síðan ég varð ólétt hehe ... þið óléttu þarna úti... og þið með pínu lítil kríli... notið tíman rosa vel... þessar elskur stækka svo hratt...og þau þroskast líka svo hratt... mér finnst núna þegar ég lít til baka eins og ég hafi alltof oft verið frá henni...finnst ég hafa farið of snemma í fyrsta skipti út á lífið og svona.. auðvita hefur maður samt gott af því að skipta smá um umhverfi en allavega skilaboð dagsins eru... njótið hverrar mínútu með börnunum ykkar... því að þau verða aldrei aftur lítil... ég heimsótti súsý og litlu Margréti Ágústu um daginn og þá sá maður hvað hún er lítil og vá hvað maður saknar þess að vera með svona lítið barn... ég vill eiga emilíu...hún er algert æði og það er frábært að fylgjast með henni að vaa og þroskast ...en svo langar manni bara í annað lítið sko... þau eru svooo sæt og friðsæl.. og ég sakna bara brjóstagjafarinnar sko hehe jæja ég ætla að hætta í bili... hafið það öll sem allra best og njótið góða veðursins sem er að koma í kjölfar sumars :)
jæja nú hef ég sko stór tíðindi... ég fór út á lífið... og ég datt í það hehe eitthvað sem hefur ekki gerst lengi ... en allavega þannig var það nú að Hjördís hringdi í mig og bauð mér í eitthvað partý sem að hún og Sigrún voru að fara í... ég fór nú bara strax í það að redda pössun og það endaði nú þannig að hann Binni passaði litlu frænku sína.. hún var reyndar sofandi en samt sem áður... ég er ekkert smá ánægð með hann að nenna að eyða laugardagskvöldi í að passa fyrir mig svo að ég komist nú út.. svona einu sinni... en það vara allavega alveg rosa gaman... við fórum í þetta partý og þar var bolla og svo var ég með smá bjór sem ég stal af mömmu ..hihi við fórum í ég hef aldrei í þessum drykkjuleik og það var spilað á gítar og sungið og hoppað á trampólíni ... alger snilld en síðan var haldið á pakkhúsið... ég og sigrún fórum í leigubíl með einhverjum strák... sem var nú bara svona líka góður í sér.... að hann borgaði taxann og hann borgaði inn fyrir okkur og svo fór hann með mig, Hjördísi og Sigrúnu á barinn og þar var fengið sér breezer og tekíla skot... ég held sko að hann hafi verið svoldið hot fyrir Hjördísi.. og var þess vegna að reyna að fylla hana hehe og vinkonur hennar hihi en anyways við græddum bara á því ... en vá ég eyddi sko ekki krónu þetta kvöld... það var einhver annar kall þarna (örugglega um 35-40 ára) sem að gaf mér breezer líka þannig að maður var komin vel í glas... enda sást það örugglega á manni þar sem að maður var dansandi eins og fífl þarna en jæja síðan þá fórum við í eftirpartý á sama stað og við vorum fyrr um kvöldið... og þar var gítarinn tekin upp á nýtt og svo fór ég meira að segja í annað eftirpartý og ég var ekki komin heim fyrr en klukkan 5 um morguninn... og Emilía vaknaði klukkan korter í 6 þannig að ég svaf eiginlega ekkert þessa nótt.. en það er alltí lagi ... maður verður nú aðeins að hafa gaman svona stundum og vera kærulaus... hehe jæja svo fór gærdagurinn svona að mestu í þynnku og ég náði aðeins að leggja mig eftir hádegi... sem betur fer..jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...ég vona að þið hafið haft það gott um helgina ... við heyrumst síðan bráðlega aftur
jæja stelpur mínar .... ég var að lesa brjálæðislega fyndna umræðu á barnaland um hvað þeim finndist turn off í fari karlmanna... ég ákvað að setja smá af henni hérna inn og endilega bætið við hvað ykkur finnst mest turn off hjá þessum köllum... ef það eru einhverjir karlmenn að lesa þetta þá megið þið alveg henda inn hvað ykkur finnst turn off í fari kvenna :)
Súperman nærur *HROLLUR*
Svona afanærbuxur (sem sagt ekki boxerar) YUCK!!!
Mér finnst hrikalegt turn off þegar karlmenn segja: "Hvað segir kallinn?" eða eitthvað þar sem orðið kallinn kemur inn í þegar þeir eru að tala við vini sína. Get ælt. LOL svoooooo sammála!!!!
Mér finnst Kallinn, kallarnir.. vera svo laim og slísí orð yfir vinina. Sérstaklega finnst mér slísí þegar menn nota "kallinn" um sjálfan sig. Eru t.d að tala í síma við vin sinn og segja.. "helduru ekki að kallinn hafi bara sofið yfir sig í morgun og komið of seint í ræktina" *æl*...
Prump :)
svo finnst mér ógeð þegar kallin er að skíta og lokar ekki hurðinni og segir svo..... oh ég er bara með hálfgerða skitu... ojjjjjj þá fær hann ekkert næsta sólahringinn ojj bara ég myndi nú bara fara og loka á minn ef hann gerði þetta... ojjj
þegar kallinn er pissfullur og er að koma heim af djamminu og þarf endilega að knúsast í manni með reykingapest og bjórfýlu !
Tandurhreint rúm, allt nýskúrað í hjónaherberginu og þurrkað af. Konan stekkur í bólið og andar að sér útilyktinni af sængurfötunum og þriflegheitunum og svo....PPRRUUMMPP! Kallinn rekur við í fíneríið....Geta bara sofið á klóstinu.....
bremsuför í brók
* Langar neglur * Andfýla * Svitalykt
Rassskora á kalli sem hefur verið að vinna og svitna allan daginn, svo beygir hann sig og þá skín nánast beint í boru.....ekki smart. Þoli ekki þegar farið er úr sokkunum inná baði, þeim snúið við svo tætist lóin úr svörtum sokkunum um allt gólf....boring.
tannskán
já og þegar þeir segja"hvernig ertu í henni"
Það er svo sem margt útlitslegt sem mér finnst vera törn off eins og t.d gular og skánhuldar tennur, táfýla, andfýla osfrv., en svo finnst mér líka vera mjög mikið törn off að hitta menn sem augljóslega eyða meiri tíma fyrir framan spegilinn en góðu hófi gegnir, gæjar sem eru appelsínugulir af ljósaofnotkun, hlusta á FM 957 ALLA daga og eru vakúmpakkaðir inn í bolina sína.....jakk
ROFL vakúmpakkaði inn í bolina sína gargandi snilld hahahahahahahahahha. Veit um einn sem ég á alltaf eftir að kalla þann vakúmpakkaða héðan í frá.
Svo hringir vinur mannsins míns iðullega þegar hann er á klósettinu að gera númer 2...svo svarar maður og það heyrist...."er XXXX.....blúps...heima?"...jakkkkk Kallinum mínum finnst þetta ferlega fyndið, þeir vaxa seint upp úr kúkahúmornum og þetta eru virðulegir bankastarfsmenn og fjámálastjórar!!!!!
Jæja þetta er bara brot af þessari blessuðu umræðu ... alger snilld... ég grenjaði bókstaflega af hlátri þegar ég var að lesa sumt af þessu... en endilega hendið inn eitthvað sem ykkur finnst turn off...
hæhæ.. dagurinn í dag var nú ekkert öfga merkilegur hjá mér... ég vaknaði alltof snemma.. klukkan hálf sex með henni emilíu.. en sem betur fer náðum við að leggja okkur aftur og sofa til hálf níu.. annars held ég sko að ég hefði ekki meikað daginn hehe emilía er búin að vera með einhverja leiðinda magapest núna í gær og í dag og ég get sko sagt ykkur það að ég hef aldrei skipt á jafn ógeðslegum kúkableyjum hjá þessari elsku.. en hún er nú samt eiginlega búin að jafna sig.. eða ég ætla rétt að vona það .. en svo fór ég líka að finna fyrir voða skrýtnum verk í kringum rifin og fer til læknis.. af því að ég á erfitt með að anda og ógeðslega vont að hósta og þá kemur í ljós að ég er með brákað eða tognað rifbein.. og mögulega brotið en hún tók ekki röntgen þannig að hún gat ekki verið alveg viss en henni fannst ekki líklegt að það væri alveg brotið.. en díses hvað þetta er óþægilegt.. og erfitt að þurfa að halda á emilíu og svona.. en þetta jafnar sig.. og svo býst ég bara við að ég þurfi að fara að drekka meiri mjólk eða taka lýsi eða eitthvað til að styrkja aðeins beinin mín.. ég hef áður brotið rif í hóstakasti og svo einu sinni þegar ég og jóhanna tróðumst undir á tónleikum.. þannig að þetta gengur ekki lengur en jamm.. vá ég var sko búin að gleyma því hvað það er gott að leggja sig á daginn.. ég ákvað á meðan að emilía svaf í vagninum að leggja mig aðeins og dísess það var sko bara næs... ég elska rúmið mitt... jæja við gerðum nú fátt annað en að liggja í leti í dag... eða jú reyndar kíktum við aðeins í heimsókn til annhelen (systir hans orra) og hún var að passa litla bróðir sinn.. og hann og emilía gátu aðeins leikið sér saman... þau eru svo miklir vinir og algerar dúllur.. hann var alltaf að reyna að setjast hjá henni en settist alltaf óvart ofaná hana haha og svo eru þau alltaf að reyna að skiptast á snuddum og ef að emilía missir snuðið sitt þá er hann sko fljótur að ná í það fyrir hana og stinga því upp í hana... þau eru bara krúttleg.. jæja þetta er orðið svo langt að það nennir örugglega enginn að lesa þetta þannig að ég ætla að fara að hætta þessu.... ef þú nenntir að lesa þetta allt þá verðuru að kommenta svo að ég geti skemmt mér yfir að lesa kommentin frá ykkur elskurnar mínar